|
Rostratus siklíðan er eina siklíðan af Fossorochromis ættinni. Hún er munnklekjari eins og flestar malavísiklíður og ver svæði sitt af miklu harðfylgi. Fossorochromis siklíður eru ekki af mbúnuætt. Karlfiskurinn er litmeiri en kerlan. Þau éta þörunga og smávatnadýr og verða býsna stórvaxin. Tímgunin er hefðbundin. Karlinn finnur sér hrygningarstað og grefur niður á flatan stein. Síðan lokkar hann kerluna að með miklum tilþrifum en rekur hana síðan burt að lokinni hrygningu. Meðgangan er um 3 vikur og að henni lokinni sleppur kerlan seiðunum og skiptir sér lítið af þeim.
|