FiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
Á forsíðu
 

Gæludýratryggingar

Verslun Furðufugla og fylgifiska í Bleikargróf 15 eru umboðsaðilar fyrir gæludýratryggingar Trygginga- miðstöðvarinnar. Hægt er að kaupa tryggingar fyrir allar gerðir gæludýra - hunda, ketti, hesta og fugla í F&F Bleikargrófinni. Þar er gæludýrið myndað og umsóknin útfyllt. Síðan þarf að panta tíma hjá dýralækni til að fá heilsufarsvottorð og þegar það hefur borist tekur tryggingin gildi. Í boði eru nokkrar tryggingar:

Sjúkrakostnaðartrygging: Það getur verið kostnaðarsamt að leita aðstoðar fyrir gæludýr hjá dýralækni, einkum ef framkvæma á aðgerðir. Þegar gæludýr veikist eða slasast er óþarfi að hafa áhyggjur af fjármálum ofan á allt annað og greiðir þessi trygging lækniskostnað vegna slysa og sjúkdóma hjá gæludýrum.
Ábyrgðartrygging: Vátryggt er gegn skaðabótaskyldu sem fallið getur á vörslumann gæludýrs vegna tjóns sem það getur valdið þriðja aðila.
Gæslutrygging: Ef veikindi eða slys ber að hjá vátryggingartaka (gæslumanni) er gott að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því hver eigi að sjá um gæludýrið. Þessi trygging greiðir dvalarkostnað gæludýrs á gæludýrahóteli ef með þarf.
Líf-og heilsutrygging: Auðvitað kemur ekkert í staðinn fyrir ástkært gæludýr en því má ekki gleyma að þau geta verið mjög verðmæt og fjárhagslegt tjón fjölskyldunnar getur verið umtalsvert. Þessi trygging greiðir bætur ef gæludýr deyr, týnist eða missir algjörlega heilsu sína.

Maður tryggir ekki eftir á! Ekki heldur þegar dýrin manns eiga í hlut!

Verðdæmi um tryggingu fyrir kött er hér að neðan og athugið að það er misjafnt verð eftir því um hvernig dýr er verið að ræða. Hér er reiknivél til að reikna út rauntryggingarkostnað:

Vátryggingartegund

Verðmæti 0 kr

Verðmæti 50.000 kr

Verðmæti 300.000 kr

Líf- og heilsutrygging

0 kr

900 kr

5.400 kr

Ábyrgðartrygging

1.250 kr

1.250 kr

1.250 kr

Sjúkrakostnaðartrygging

1.800 kr

2.175 kr

4.050 kr

Gæslutrygging

1.400 kr

1.400 kr

1.400 kr

Samtals:

4.450 kr

5.725 kr

12.100 kr

botn