|
Golden-capped Conure Aratinga auricapilla auricapilla
Lýsing: Almennur litur dökkgrænn; svæði framan á enni um augun rautt og verður gulappelsínugult fremst á hvirfli; kinnar á sumum fuglum gular-gulappelsínugular; háls og efri hluti bringu með grábláum blæ; fjaðrir neðar á bringu, kvið og neðra bak með rauð-vínrauðri brún; undirvængblöðkur rauðar; ytri hluti aðalflugfjaðra, aðalvængblaðka og aukaflugfjaðra blár; efrihlið stéls olivíugrænn með bláum endum; undirhlið stéls og flugfjaðra svartleit; augnhringur hvítleitur; augu brún; goggur svartleitur; fætur gráir.
Óþroskaðir fuglar grænir á fremri hluta hvirfils og nokkrar rauð-rauðappelsínugular fjaðrir á víð og dreif; daufari rauð brún á kviðfjöðrum og fjöðrum á neðra hluta baks; augu dökk.
Lengd: 30 cm.
Lífslíkur: 30-40 ár.
Um kynin: Litill munur á kynjum. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Norður- og miðhluti Bahia héraðs í Brasilíu, blandast A. a. aurifrons í suðurhluta Bahia.
Um fuglinn: Mjög líflegur fugl og auðveldur umhirðu. Hann nagar mikið og þarf nóg af ferskum greinum. Hefur gaman af að baða sig. Harðgerður eftir aðlögun og venst eigandanum fljótt. Hávær snemma morguns og á kvöldin og einnig ef honum bregður. Getur verið með öðrum í búri, einnig öðrum haukpáfum af Aratinga ætt. Líka um varptímann.
Hávaðasemi: Í meðallagi hávær-hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í mikilli útrymingarhættu vegna skógarhöggs. Víða horfinn með öllu.
|
|