|
Golden-fronted Conure Aratinga auricapilla aurifrons
Lýsing: Eins og A. a. auricapilla en yfirleitt dökk- grænni; kinnar dökkgrænar án gula blæsins; neðri hluti baks yfirleitt án rauðu fjaðranna.
Lengd: 30 cm.
Lífslíkur: 30-40 ár.
Um kynin: Litill munur á kynjum. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Suðaustur-Brasilía frá norðhluta Rio Grande do Sul norður til suðurhluta Goias og Minas Gerais héraðs; blandast A. a. auricapilla í suðurhluta Bahia.
Um fuglinn: Mjög líflegur fugl og auðveldur umhirðu. Hann nagar mikið og þarf nóg af ferskum greinum. Hefur gaman af að baða sig. Harðgerður eftir aðlögun og venst eigandanum fljótt. Hávær snemma morguns og á kvöldin og einnig ef honum bregður. Getur verið með öðrum í búri, einnig öðrum haukpáfum af Aratinga ætt. Líka um varptímann.
Hávaðasemi: Í meðallagi hávær-hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í mikilli útrymingarhættu vegna skógarhöggs. Víða horfinn með öllu.
|
|