|
Green Conure (Green Parakeet) Aratinga holochlora holochlora
Lýsing: Almennur litur grænn; gulgrænn á bringu og kvið; nokkrar rauðar fjaðrir á höfði sumra fugla; undirvængblöðkur dauf gulgrænar; undirhlið flugfjaðra og stéls olívíugræn; augnhringur rauðgrár; goggur ljós með svörtum flekkjum við broddinn; augu rauðappelsínugul; fætur holdlitaðir.
Óþroskaðir fuglar án rauðu fjaðranna; augu dökk.
Lengd: 32 cm.
Lífslíkur: 30-40 ár.
Um kynin: Litill munur á kynjum. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Austur og suður Mexíkó og suðurhluti Mexíkó frá Nuevo Leon suður til Veracruz, Oaxaca og Chiapas.
Um fuglinn: Hann er mikill nagari og þarf nóg af ferskum greinum. Hefur gaman af að baða sig. Oft frekar feiminn og venst eigandanum hægt. Harðgerður og kraftmikill eftir aðlögunartímann. Getur verið með öðrum tegundum af svipaðri stærð utan varptíma.
Hávaðasemi: Hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Víðast hvar algengur.
|
|