|
Nicaraguan Green Conure Aratinga holochlora strenua
Lýsing: Eins og A. h. holochlora en með stærri og kröftugri gogg og klær.
Lengd: 34 cm.
Lífslíkur: 30-40 ár.
Um kynin: Ekki hægt að kyngreina nema með DNA greiningu.
Uppruni: Meðfram Kyrrahafsströnd Oaxaca héraðs í Mexíkó til norðurhluta Nikaragúa.
Um fuglinn: Hann er mikill nagari og þarf nóg af ferskum greinum. Hefur gaman af að baða sig. Oft frekar feiminn og venst eigandanum hægt. Harðgerður og kraftmikill eftir aðlögunartímann. Getur verið með öðrum tegundum af svipaðri stærð utan varptíma.
Hávaðasemi: Hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Víðast hvar algengur.
|
|