|
 |
|
Kangaroo Island Crimson Rosella Platycercus elegans melanoptera
Lýsing: Eins og Platycercus e. elegans en rauða brúnin á bakfjöðrum mjórri.
Óþroskaðir fuglar eins og Platycercus e. elegans.
Lengd: 36 cm.
Lífslíkur: 30-35 ár.
Um kynin: Kvenfuglinn er að jafnaði minni og efrihlið miðstélfjaðra er grænleit: goggur minni og mjórri.
Uppruni: Kangaroo eyja út af strönd Suður-Ástralíu.
Um fuglinn: Glæsipáfinn er athafnasamur og hrekk- laus fugl. Hann verður harðger er hann aðlagast nýjum aðstæðum. Hann getur sjaldnast verið með öðrum fuglum. Hefur gaman af að baða sig og nagar mikið og þarf því gott framboð af greinum. Hefur einnig gaman af að krafsa í jörð og þarf því reglulega ormahreinsun.
Hávaðasemi: Miðlungs hávær-hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur.
|
|