|
Margarita Conure Aratinga acuticaudata neoxena
Lýsing: Eins og A. a. haemorrhous en bringa og kviður áberandi blágrænn; efri og neðri goggur ljós; minni.
Lengd: 34 cm.
Lífslíkur: 25-30 ár.
Um kynin: Ekki hægt að kyngreina nema með DNA greiningu.
Uppruni: Hluti Boca del Rio á venesúelísku eynni Margaritu.
Um fuglinn: Þessi haukpáfi er gáfaður fugl en getur verið dálítið hávaðasamur og svolítill skemmdarvargur.Þarf nóg af greinum til að naga. Hlédrægur í fyrstu og taugaóstyrkur en venst eigandanum smám saman. Harðgerður eftir aðlögunartíma. Getur verið með öðrum fuglum utan varptíma.
Hávaðasemi: Í meðallagi hávær-hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Á undanhaldi og í hættu.
|
|