|
Venezuelan Blue-crowned Conure Aratinga acuticaudata koenigi
Lýsing: Eins og A. a. haemorrhus en með minna rauðbrúnt á neðri hluta undirstélfjaðra; efri og neðri goggur ljós; fuglar frá venesúelísku borgunum Ciudad Bolivar og Caicara á bökkum Orinoco-árinnar oft (en ekki alltaf) með aðeins gráan neðri gogg; miklu minni.
Lengd: 34 cm.
Lífslíkur: 25-30 ár.
Um kynin: Ekki hægt að kyngreina nema með DNA greiningu.
Uppruni: Norðurhluti Venesúelu og nærliggjandi austurhluti Kólombíu.
Um fuglinn: Þessi haukpáfi er gáfaður fugl en getur verið dálítið hávaðasamur og svolítill skemmdavargur.Þarf nóg af greinum til að naga. Hlédrægur í fyrstu og taugaóstyrkur en venst eigandanum smám saman. Harðgerður eftir aðlögunartíma. Getur verið með öðrum fuglum utan varptíma.
Hávaðasemi: Í meðallagi hávær-hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur víðast hvar.
|
|