toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Neolamprologus brichardi

Princess of Burundi (Fairy Cichlid)
Neolamprologus brichardi

Stærð: 9 cm.

Kynin: Kyngreining er erfið. Uggarnir oddmjórri á hængnum. Hrygnan jafnan minni. Gamlir hængar fá smá hnúð á enni.

Um fiskinn: Álfasiklíðan er árásargjörn á sína eigin tegund.  Hún vill hafa nóg af steinum og grjóti kringum sig. Fallegur, gráleitur fiskur með svartan blett aftan við auga og yfir táknin og lýrulaga sporð. Ein vinsælasta Tanganyikasiklíðan. Hún ber sig mjög vel og er sérlega tíguleg en lætur ekki vaða yfir sig. Heldur sig í stórum hópum í Tanganyikavatni - allt að því 100.000 fiskar saman! Henta samt best einir í búri því þeir geta verið grimmir á hrygningartímanum. Geta þó gengið með leleupi, julidochromis og calvus en ekki malaví- eða viktoríuvatnssiklíðum. Harðgerður byrjendafiskur. Ýmis litarafbrigði til td. “Rutunga” (neðsta mynd) og einnig albíno (mið mynd).

Æxlun: Það er ekki erfitt að fá álfasiklíðuna til að æxlast en hún hrygnir oftast í mjóum hellum eða sprungum. Mynda föst pör sem verja hrygningar- svæðið, hrognin og afkvæmin. Systkini úr eldra goti hugsa um yngri systkini. Hrognafjöldi 30-100.

Búrstærð: 100 l

Hitastig:  22-25°C

Sýrustig (pH): 8-9

Harka (gH): 9-19

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.

Verð: venjuleg 1.890 kr
       albínó 2.590 kr.

Neolamprologus brichardi02
Neol brichardi albino
Brichardi rutunga03
botn