|
Super VC-10 Hap Placidochromis milomo
Stærð: 20 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er stærri og litmeiri en kerlan og fær þykkari gúmmíkenndar varir. Bæði eru flekkótt (neðsta mynd) eins og Venustus en hængurinn verður fagurblár við tímgun (efsta mynd). Nafnið kemur til af því hve snöggur hann er að flýja undan háfi. Super VC-10 var flugvélategund sem var lengi notuð til farþegaflutninga milli Malaví og Lundúna.
Um fiskinn: Þessi fallegi stórfiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir erfitt um vik að setja tvo karlfiska í sama búr. Best að hafa nokkrar hrygnur á hvern hæng. Þekkist á stærðinni og gúmmivörunum. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst nálægt Likoma eyju og víðar í vatninu.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 400 l
Hitastig: 24-26°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 9-19
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|