|
Siklíður af ættinni Nimbochromis eru stórar og litsterkar. Þær eru munnklekjarar, eins og flestar malavísiklíður, en flokkast ekki undir mbúnur. Þær verja svæði sitt af miklum eldmóð. Kvenfiskarnir eru litdaufari en karlarnir. Nimbochromis siklíður éta þörunga og smáseiði. Tímgunin er hefðbundin fyrir malavísiklíður. Karlinn finnur sér hrygningarstað og grefur niður á flatan stein. Síðan lokkar hann kerluna að með miklu tilþrifum en rekur hana síðan burt að hrygningu lokinni. Meðgangan er um 3 vikur og að því loknu sleppur kerlan seiðunum og skiptir sér lítið af þeim.
|
|