toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Red-throated Conure

Red-throated Conure
Aratinga rubritorquis

Lýsing: Almenn litur grænn; neðri hluti bringu og kviður gulgrænn; nokkrar rauðar höfuðfjaðrir hjá sumum; kinnar, háls og efri hluti bringu rauð- appelsínugulur; undirhlið vængblaðka dauf gul- grænar; undirhlið flugfjaðra og stéls olívíugular; augnhringur rauðgrár; goggur ljós með svörtu við goggbroddinn; augu rauðappelsínugul; fætur holdlitaðir-gráir.

Óþroskaðir fuglar án rauðu fjaðranna og þá oft ruglað saman við
Aratinga holochlora; fá fullorðinsham um 14 mánaða gamlir; augu dökk.

Lengd: 30 cm.

Lífslíkur: 30-40 ár.

Um kynin: Svipuð í útliti.

Uppruni: Austurhluti Gvatemala, El Salvador og norðurhluti Nikaragúa. Finnast í skóglendi upp í 2.600 m hæð.

Um fuglinn: Leikglaður og félagslyndur fugl. Þeir eru yfirleitt ekki góðir talfuglar en ófeimnir og forvitnir. Naga mikið og þurfa því nóg af greinum. Hafa gaman af að baða sig og harðgerðir eftir aðlögunartíma. Geta eingöngu umgengist aðrar tegundir utan varptíma.

Hávaðasemi: Í meðallagi, en getur verið hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur.

red-throat1

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn