toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Sciaenochromis ahli

Ahli

Electric Blue Hap
Sciaenochromis ahli

Stærð: 16-20 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er fagurblár með hvíta blesu (meiri en Sc. fryeri) en hrygnan minni og brúnsilfurleit (neðsta mynd). Vottar fyrir 10-11 þverböndum á búknum. Líkjast mjög Sc. fryeri og umdeilt hvort þetta séu aðgreindar tegundir.

Um fiskinn: Þessi stórgerði og gríðarfallegi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir erfitt um vik að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 10-40 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst víða í Malavívatni. Nokkur litarafbrigði til eftir því hvaðan fiskurinn er úr vatninu.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar og fjölkvænisfiskar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum. Grefur nokkuð.

Búrstærð: 600 l

Hitastig:  24-26°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 9-19

Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.

Sciaenochromis_ahli
botn