|
Siklíður af ættinni Tyrannochromis eru litsterkar og munnstórir ránfiskar. Þær eru munnklekjarar, eins og flestar malavísiklíður, og flokkast undir mbúnur. Þær verja svæði sitt af miklu harðfylgi. Karlfiskurinn er litmeiri en kvenfiskurinn og þeir nærast á vatnasmá- dýrum, þörungum og öðrum fiskum. Tímgunin er hefðbundin fyrir malavísiklíður. Karlinn finnur sér hrygningarstað og grefur niður á flatan stein. Síðan lokkar hann kerluna að með miklu tilþrifum en rekur hana síðan burt að hrygningu lokinni. Meðgangan er um 3 vikur og að því loknu sleppir kerlan seiðunum og skiptir sér lítið af þeim.
|
|