|
|
Mosaic Cichlid Vieja fenestrata
Stærð: 25 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan. Rauður á höfði með mósæík mynstri í hreistrinu. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum. Líkjast V. synspila.
Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins.
Æxlun: Það er auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Hrognafjöldi 100-150. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.
Uppruni: Norður-Ameríka: Atlantshafshlið Mexíkó frá Papaloapán fljóti til vatnasvæðis Chachalacas fljóts.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 23-30°C
Sýrustig (pH): 7,5
Harka (gH): 10-20
Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía.
Verð: 10-12 cm: 7.690 kr.
|
|