|
White-tailed Cockatoo Calyptorhynchus funereus baudinii
Lýsing: Eins og C. f. funereus nema almenn litur svargrár; allar gular merkingar hvítleitar; fölari svargráir blettir á stélfjöðrum; minni.
Lengd: 58 cm.
Lífslíkur: 50-70 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir eins og C. f. funereus en með skærari fjaðurmerkingar og dökkgráan augnhring.
Uppruni: Suðvestur-Ástralía.
Um fuglinn: Rólegur og mjög harðger eftir aðlögun. Verða sljóir í búrum og af of litlum vistarverum. Getur átt það til að vera matvandur, einkum ef hann skiptir um eigendur en étur gjarnan furuhnetur í fyrstu. Mikill nagari og þarf gott framboð af ferskum laufguðum greinum og rotnandi viði.
Hávaðasemi: Frekar hljóðlátur.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Stofninn á undanhaldi og í hættu.
|
|