toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Yellow-tailed Cockatoo

Yellow-tailed Cockatoo
Calyptorhynchus funereus funereus

Lýsing: Almenn litur svarbrúnn; allar fjaðrir með gulri brún; eyrnafjaðrir gular; miðstélfjaðrir svarbrúnar, hliðarfjaðrir svarbrúnar með gulu bandi og svörtum blettum; húðbleikur augnhringur; augu dökkbrún; fætur grábrúnir; goggur dökkgrár.

Óþroskaðir fuglar líkjast kvenfuglinum en ungir karlar hafa daufari eyrnafjaðrir og goggurinn gráleitur.

Lengd: 65 cm.

Lífslíkur: 50-70 ár.

Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlfuglarnir nema eyrnafjaðrir skærgular; fleiri doppur á gula stélbandinu; goggur ljós; augnhringur dökkgrár.

Uppruni: Austurhluti Ástralíu frá miðhluta Queensland suður til austurhluta Victoriu.

Um fuglinn: Rólegur og mjög harðger eftir aðlögun. Verða sljóir í búrum og af of litlum vistarverum. Getur átt það til að vera matvandur, einkum ef hann skiptir um eigendur en étur gjarnan furuhnetur í fyrstu. Mikill nagari og þarf gott framboð af ferskum laufguðum greinum og rotnandi viði.

Hávaðasemi: Frekar hljóðlátir.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Stofninn á undanhaldi og í hættu.

yellow-tailed_black1

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Calyptorhynchus funereus baudinii
Calyptorhynchus funereus latirostris
Calyptorhynchus funereus xanthanotus

botn