|
Abbott’s Lesser Sulphur-crested Cockatoo Cacatua sulphurea abbotti
Lýsing: Eins og C. s. sulphurea nema með fölgular eyrnafjaðrir og miklu stærri.
Óþroskaðir fuglar með ljósari fætur og gogg; augu dökk hjá báðum kynjum; ungir kvenfuglar fá fullorðinsaugnlit oft við 12 mánaða aldur.
Lengd: 40 cm.
Lífslíkur: 50-60 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlfuglarnir en augu rauð og goggur yfirleitt smærri.
Uppruni: Solombo Besar-eyja, Indónesíu.
Um fuglinn: Fallegur og tígullegur fugl. Mikill nagfugl. Getur nagað sundur vír. Þarf því að fá nóg til að naga. getur farið að reita sig ef honum leiðist. Harðgerður eftir aðlögunartíma og fljótur að venjast eigandanum.
Hávaðasemi: Oft hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í mikilli útrýmingarhættu og næstum útdauður á Solombo Besar.
|
|