|
Timor Cockatoo Cacatua sulphurea parvula
Lýsing: Eins og C. s. sulphurea nema með fölgular eyrnafjaðrir.
Óþroskaðir fuglar með ljósari fætur og gogg; augu dökk hjá báðum kynjum; ungir kvenfuglar fá fullorðinsaugnlit oft við 12 mánaða aldur.
Lengd: 33 cm.
Lífslíkur: 50-60 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlfuglarnir en augu rauð og goggur yfirleitt smærri.
Uppruni: Sunda-eyjar (nema Sumba) frá Lombok til Timors og Samao, og Noesa Penida, Indónesíu.
Um fuglinn: Fallegur og tígullegur fugl. Mikill nagfugl. Getur nagað sundur vír. Þarf því að fá nóg til að naga. getur farið að reita sig ef honum leiðist. Harðgerður eftir aðlögunartíma og fljótur að venjast eigandanum.
Hávaðasemi: Oft hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í mikilli útrýmingarhættu á mörgum eyjum. Sums staðar útdauður td. Lombok og Noesa Penida.
|
|