|
Great Palm Cockatoo Probosciger aterrimus goliath
Lýsing: Eins og P. a. aterrimus nema stærri.
Lengd: 68 cm.
Lífslíkur: 50-70 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlfuglarnir en minni og með sýnilega styttri efri gogg.
Uppruni: Vogelkop-skagi á vesturhluta Nýju-Gíneu austur til suðausturhluta Papúa; á Vestur-Papuan eyjum, nema Misool.
Um fuglinn: Mjög virkir fuglar og nokkuð harðgerðir eftir aðlögun. Verða sljóir í búrum og af of litlum vistarverum. Getur átt það til að vera matvandur, einkum ef hann skiptir um eigendur en étur gjarnan furuhnetur í fyrstu. Mikill nagari og þarf gott framboð af greinum. Sýnir alls konar leikaratilþrif. Góður talfugl.
Hávaðasemi: Miðlungi hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Stofninn á undanhaldi og í hættu.
|
|