|
Palm Cockatoo (Cape York Cockatoo) Probosciger aterrimus aterrimus
Lýsing: Almenn litur grásvartur; nefsvæði og enni svart; bersvæði yfir kinnar ljósrautt en dumbrautt þegar fuglinn er æstur; baklægar afturmjóar fjaðrir í kambi; augnhringur svartur; augu dökkbrún; fætur gráir; goggur svartur.
Óþroskaðir fuglar með daufan efri gogg.
Lengd: 60 cm.
Lífslíkur: 50-70 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlfuglarnir en minni og með sýnilega styttri efri gogg.
Uppruni: Aru-eyjar, Misool-eyja, suðurhluti Nýju Gíneu frá Merauke austur til Papua-flóa; Cape York skaginn í N-Ástralíu.
Um fuglinn: Mjög virkir fuglar og nokkuð harðgerðir eftir aðlögun. Verða sljóir í búrum og af of litlum vistarverum. Getur átt það til að vera matvandur, einkum ef hann skiptir um eigendur en étur gjarnan furuhnetur í fyrstu. Mikill nagari og þarf gott framboð af greinum. Sýnir alls konar leikaratilþrif. Góður talfugl.
Hávaðasemi: Miðlungi hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Stofninn á undanhaldi og í hættu.
|
|