toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Adelaide Rosella

Adelaide Rosella
Platycercus adelaidae adelaidae

Lýsing: Almennur litur sterk appelsínugulur-rauður; enni, nefsvæði og hvirfill rauðappelsínugulur; hliðar höfuðs og hnakki gulappelsínugular; kinnar bláfjólubláar; kviður og bringa gul með meira og minna sterk rauðappelsínugulum blæ; hnakki og bak svart, hver fjöður með olivíugulri brún og að hluta með dauf rauðappelsínugulum blæ; neðra bak olivíugult og út í gulappelsínugult á efri stélblöðkum og með rauðappelsínugulum blæ; axlafjaðrir svar- gráar og með breiðri rauðappelsínugulri brún; innri miðvængblöðkur svartar; vængbeygja og ytri mið- vængblöðkur skærbláar; aukavængblöðkur fölbláar; aukaflugfjaðrir, ytri hluti rótar aðalflugfjaðra og undirvængblaðka djúpblár; efri hlið miðstélfjaðra dökk bláfjólublá með dökkgrænni rót; ytri stélfjaðrir dökk- bláar með skærblárri brún og fölum brúnum; undirhlið stéls fölblá; goggur ljós-grár; augnhringur mjór og grár; augu dökkbrún; fætur gráir.

Rauðappelsínugular fjaðrir fullorðinna eru olivíugrænar í óþroskuðum fuglum nema á enni, hvirfli, efri kinnum, hálsi, hluti efri bringu, lendum og undir- stélsblöðkum; innri miðvængblöðkur og ytri auka- vængblöðkur dauf olivíugrænar; undirvængblöðkur daufbláar; efri hlið miðstélfjaðra dökk olivíugræn með svartri brún; undirhlið stéls föl gráblá; fölt vængband til staðar; fá fullorðinsham 16 mánaða gamlir.

Lengd: 35 cm.

Lífslíkur: 30-35 ár.

Um kynin: Kvenfuglinn er að jafnaði minni og með appelsínugular fjaðrir á víð og dreif: fölt vængband stundum til staðar; minni og goggur mjórri.

Uppruni: Suðurhluti Ástralíu frá suðurodda Fleurieu Peninsular norður yfir Mount Lofty fjallgarðinn nánast alla leið til Clare og Burra. Þetta er náttúrleg blanda af Crimson Rosella og Yellow Rosella.

Um fuglinn: Athafnasamur fugl og harðger. Hefur gaman af að baða sig og nagar mikið og þarf því gott framboð af greinum. Hefur einnig gaman af að krafsa í jörð og þarf því reglulega ormahreinsun. Gnengur ekki með öðrum fuglum.

Hávaðasemi:  Miðlungs hávær-hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur víðast hvar.

Adelaide rosella

Undirafbrigði:
Platycercus adelaidae subadelaidae

botn