toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Bare-eyed Corella

cacatua-pastinator-pastinator

Bar-eyed Corella (Little Corella/Bare-eyed Cokatoo)
Cacatua pastinator pastinator

Lýsing: Hvítur; mjög stuttur, breiður kambur; nefsvæði, rót höfuðfjaðra, hnakkafjaðra, bringu- og bakfjaðra appelsínugulbleik; eyrnafjaðrir og fjaðrir undir augu með dökkgulum blæ; undirhlið stéls og vængja með gulleitum blæ; goggur grár-ljósleitur og ílangur; augnhringur blágrár og nær niður á efri hluta kinna; augu dökkbrún; fætur gráir.

Óþroskaðir fuglar líkjast fullorðnum en með styttri gogg; augnhringur minna blár.

Lengd: 40 cm.

Lífslíkur: 40-60 ár.

Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlarnir, DNA-grein- ingar þörf.

Uppruni: Suðvestur-Ástralía.

Um fuglinn: Frekar hávær þegar hann er spenntur og ókunnugir nálgast. Harðgerður eftir aðlögun. Hlédrægur í fyrstu. Hænist fljótt að eigandanum. Hefur mikla nagþörf og þarf því nóg af greinum. Þetta skiptir miklu máli. Þarf að ormahreinsa reglulega.

Hávaðasemi:  Frekar háværir.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Í útrýmingarhættu vegna veiða og skógarhöggs. Er að ná sér á strik aftur.

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Cacatua pastinator gymnopsis
Cacatua pastinator normantoni
Cacatua pastinator sanguinea
Cacatua pastinator transfreta

botn