|
Sclater’s Bare-eyed Cockatoo Cacatua pastinator gymnopsis
Lýsing: Eins og C. p. pastinator nema mjög stuttur og sveigður goggur; augnhringur dökk blágrár; minni. Óþroskaðir fuglar eins og fullorðnir en augnhringur minna blár.
Lengd: 36 cm.
Lífslíkur: 40-60 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlarnir, DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Þurrt hálendi í suðausturhluta Northern Territory, mið- og suðaustur Queensland, vesturhluti New South Wales, norðvesturhluti Victoria og austur- hluti Suður-Ástralíu og Vestur-Ástralía að vestur- ströndinni, þar með talin stærri eyjar út af ströndinni; spannar sama svæði og C. p. pastinator á miðhluta vesturstrandarinnar.
Um fuglinn: Frekar hávær þegar hann er spenntur og ókunnugir nálgast. Harðgerður eftir aðlögun. Hlédrægur í fyrstu. Hænist fljótt að eigandanum. Hefur mikla nagþörf og þarf því nóg af greinum. Þetta skiptir miklu máli. Þarf að ormahreinsa reglulega.
Hávaðasemi: Frekar háværir.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Nokkuð algengur.
|
|