Decorator Crab

Decorator Crab
Libinia spp.

Stærð: cm

Uppruni:
Atlantshaf.

Um dýrið:
Margir kongúlóakrabbar kallast skrautkrabbar vegna þeirrar áráttu sinnar að hlaða á sig smásæfíflum og holsepum polyps) til að dulbúast - og tekst býsna vel uppi eins og efsta og neðsta myndin ber með sér. Þetta eru annars hefðbundnir, lappalangir trjónukrabbar sem leita sér stöðugt ætis á búrbotninum (sjá miðmynd). Þeir henta ágætlega í flestum sjávarbúrum en geta gengið of langt í glysgirni sinni og skemmt kóralla. Skrautkrabbarnir eru uppátækjasmir og gaman að fylgjast með þeim í búri. Þeir þurfa gott búr með rólegum fiskum og hreinu vatni.

Fóður: Hvers konar kjötmeti, dafnía, artemía.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 2.390/2.790/3.090 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998