|
Krabbar af ættinni Brachyura hafa fimm fótapör eins og aðrir krabbar og lítinn hala sem þeir falda undir flatan búkinn. Augnastilkarnir eru langir og falla inn í totur á skelinni. Framfæturnir mynda sterkar griptangir. Til þessarar ættar teljast ætikrabbar og sérkennilegri krabbar á borð við örvarhausinn (Arrowhead) og skrautkrabbinn (Decorator Crab). Sumir Brachyura krabbar vinna gott og þarft starf í sjávarbúri en geta margir hverjir orðið til vandræða þegar þeir stækka - bæði umturnað búraskrauti og lagt íbúa búrsins sér til munns.
|