|
Hermit Crab - Rock Red Leg (Scarlet Hermit) Paguristes cadenati
Stærð: 2,5 cm
Uppruni: Karíbahaf.
Um dýrið: Fallegur og vinsæll skarlatsrauður krabbi með gult andlit og gula augnastilka. Hann er reef-safe (kórallavænn) og nærist á alls kyns úrgangi og matarleifum, og einkum þörungi. Þetta er einn af grunnverkamönnunum í sjávarbúri og má hafa marga saman til að halda búrinu hreinu og fínu. Þetta er harðger krabbi og gaman að fylgjast með honum að störfum. Þarf hreint og gott vatn og eðlilegan straum. Ekki má gleyma að setja stærri skeljar í búrið til hans.
Fóður: Þörungur, dafnía, artemía.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 30 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 1.390/1.590/2.590 kr.
|