Hermit Crab - Tiger

Hermit Crab - Tiger (Yellow Hairy Hermit)
Aniculus maximus

Stærð: 10 cm

Uppruni:
A-Kyrrahaf, Hawaii.

Um dýrið:
Fallegur en dýr kuðungakrabbi með loðnar, tígrismynstraðar lappir. Hann er ekki kórallavænn vegna stærðar sinnar og geðslags. Hann hentar best einn í búri með stærri fiskum þar eð hann étur skeldýr, blævængsorma og smáfiska, og getur verið grimmur í garð annarra kuðungakrabba. Þetta er harðger krabbi og skemmtilegt að fylgjast með honum plægja allan búrbotninn í ætisleit. Þarf hreint og gott vatn og eðlilegan straum. Ekki má gleyma að setja stærri skeljar í búrið til hans.

Fóður: Hvers konar kjötmeti, ánamaðkar, rækjur, artemía, mýsisrækjur.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 200 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 10.090/12.390/15.490 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998