Horseshoe Crab

Horseshoe Crab
Limulus polyphemus

Stærð: Allt upp í 60 cm.

Uppruni:
Atlantshaf, Karíbahaf.

Um fiskinn:
Skeifukrabbinn er eins og aftur úr grárri forneskju. Hann er skyldari lúsum en kröbbum og afar sérstæður og skemmtilegur. Hann er reef-safe (kórallavænn) og nærist á alls kyns úrgangi, matarleifum og smálífverum sem hann rótar stöðugt eftir í botnlaginu. Meðan skeifukrabbar eru litlir vinna þeir gagnlegt starf við að lofta botnlagið en geta verið varasamir gagnvart skeldýrum og fiskum þegar þeir verða fullvaxta. Kvendýrið er stærra en karldýrið (til hægri á efstu mynd). Þetta er harðger og friðsamur krabbi og gaman að fylgjast með honum að störfum. Þarf hreint og gott vatn og sæmilegan straum. Skiptir um ham þegar hann stækkar.

Fóður: Þörungur, dafnía, artemía.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 120 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 2.590/3.090/4.090 kr.
 

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998