Mithrax Crab

Mithrax Crab (Emerald Crab)
Mithrax sculptus

Stærð: 6-7 cm

Uppruni:
Karíbahaf.

Um dýrið:
Fjörmikill krabbi sem gaman er að fylgjast með. Þeir eru yfirleitt taldir reef-safe en geta farið í smáfiska þegar þeir stækka. Þeir mega verið margir í sama búri. Mjög góðir hreinsikrabbar og fjarlægja matarleifar í búri. Þarf að vera í hreinu vatni með nóg af felustöðum. Gæta þarf þess að setja nauðsynleg snefilefni (trace elements) í vatnið reglulega, annars geta þeir átt í erfiðleikum með hamskipti og drepist. Einn af fáum kröbbum sem éta hinn hvinleiða blöðruþörung (Valonia) í búrum. Ef þörung vantar þarf að gefa honum þang eða kjötmeti aukalega.

Fóður: Hvers konar kjötmeti og grænfóður, dafnía, artemía, spirúlína.

Sýrustig (pH): 8,1-4

Búrstærð: 60 l

Hitastig: 23-27°C

Verð: 2.890/3.290/3.690 kr.

Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998