|
Princess of Zambia (Daffodil Cichlid) Neolamprologus pulcher
Stærð: 7,2 cm.
Kynin: Kyngreining er erfið. Uggarnir oddmjórri á hængnum. Hrygnan jafnan minni. Gamlir hængar fá smá hnúð á enni.
Um fiskinn: Dísarsiklíðan er árásargjörn á sína eigin tegund. Hún vill hafa nóg af steinum og grjóti kringum sig. Fallegur, gráleitur fiskur með svartan blett aftan við auga og yfir táknin og lýrulaga sporð. Ein vinsælasta Tanganyikasiklíðan. Hún ber sig mjög vel og er sérlega tíguleg en lætur ekki vaða yfir sig. Hentar samt best einir í búri því þeir geta verið grimmir á hrygningartímanum. Geta þó gengið með leleupi, julidochromis og calvus en ekki malaví- eða viktoríuvatnssiklíðum. Óráðlegt að blanda saman við aðrar brichardi tegundir vegna hættu á kynblöndun. Harðgerður byrjendafiskur. Nokkur litarafbrigði til.
Æxlun: Það er ekki erfitt að fá dísarsiklíðuna til að æxlast en hún hrygnir oftast í mjóum hellum eða sprungum. Mynda föst pör sem verja hrygningar- svæðið, hrognin og afkvæmin. Systkini úr eldra goti hugsa um yngri systkini. Hrognafjöldi 30-50.
Búrstærð: 100 l
Hitastig: 24-26°C
Sýrustig (pH): 7,3-8,5
Harka (gH): 18
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.
Verð: ”Daffodil” 1.890 kr
|
|