toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Parachromis loisellei

P_loisellei

Yellowjacket Cichlid
Parachromis loisellei

Stærð: 18,5 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari og stærri en hrygnan (mið mynd). Svipar til P. managuensis en er gulleitari. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum og hann fær hnúð á höfðinu með aldrinum.

Um fiskinn: Þessi myndarlegi ránfiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Þetta er mjög gáfað dýr og gaman að eiga og fylgjast með henni. Gún er þó ekki eins grimm og jagúarsiklíðan og úlfasiklíðan.

Æxlun: Það er frekar auðvelt að fá þá til að fjölga sér ef búrið einfaldlega býður upp á það. Parið verður kynþroska 12-14 mánaða og velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku. Geta hrygnt á 4 vikna fresti ef tekið er undan þeim.

Uppruni: Mið-Ameríka: Atlantshafsmegin - Ulua fljótið (Hondúras) til Cricamola fljóts (Panama); Kyrrahafs- megin - í Tamarindo fljóti (Níkaragúa).

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  24-37°C

Sýrustig (pH): 7

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía, smáfiskar.

Verð: 6 cm: 1.790 kr.

Parac loiselli
loisellei
botn