|
Siklíður af ættinni Placidochromis eru litsterkar og stórar. Þær eru munnklekjarar, eins og flestar malavísiklíður, og flokkast undir mbúnur. Þær verja svæði sitt af miklum eldmóð. Bæði kynin eru litmikil. Placidochromis siklíður éta þörunga og smávatnadýr. Tímgunin er hefðbundin fyrir malavísiklíður. Karlinn finnur sér hrygningarstað og grefur niður á flatan stein. Síðan lokkar hann kerluna að með miklu tilþrifum en rekur hana síðan burt að hrygningu lokinni. Meðgangan er um 3 vikur og að því loknu sleppur kerlan seiðunum og skiptir sér lítið af þeim.
|
|