|
Porcelain Crab Petrolisthes cinctipes.
Stærð: 2,5 cm
Uppruni: Kyrrahaf.
Um fiskinn: Postulínskrabbinn er gulleitur með dökkum doppum eða rákum. Hann veiðir svif og nærist á matarleifum. Þeir búa gjarnan innan um kóralla og kræklinga þar sem þeir fela sig til að hafa næði til veiða. Ef ráðist er á þá missa þeir gjarnan kló eða löp til að villa um fyrir óvininn meðan þeir flýta sér í felur. Limurinn vex aftur áður en líður á löngu. Þeir eru kórallavænir (reef-safe) en ætti ekki að hafa með stærri kröbbum og eiga það einnig til að berjast innbyrðis. Þurfa hreint vatn, góðan straum og búr með mörgum felstöðum. Þeir eru harðgerðir og yfirleitt friðsamir. Nokkur afbrigði eru til.
Fóður: Nærast á fóðri og svifi í búrinu en gott að setja fóðurtöflu hjá þeim.
Sýrustig (pH): 8,1-4
Búrstærð: 80 l
Hitastig: 23-27°C
Verð: 2.390/3.090/3.490 kr.
|