|
Sally Light Foot (Nimble Spray Crab) Percnon gibbesi
Stærð: 8-10 cm
Uppruni: Karíbahaf.
Um dýrið: Flatur og tápmikill krabbi sem gaman er að fylgjast með. Þeir eru yfirleitt taldir reef-safe en geta traðkað svolítið á kóralla án saka og hugsanlega reynt að éta smáfiska eða ungviði þegar þeir stækka. Þeir mega verið margir í sama búri en yfirleitt ekki fleiri en einn á hverja 100-200 lítra. Ágætir hreinsikrabbar og fjarlægja matarleifar í búri. Mega ekki vera með stærri fiskum sem gætu reynt að éta þá. Þarf að vera í hreinu vatni með nóg af felustöðum. Gæta þarf þess að setja nauðsynleg snefilefni (trace elements) í vatnið reglulega, annars geta þeir átt í erfiðleikum með hamskipti og drepist. Einu krabbarnir sem éta blöðruþörung í búrum.
Fóður: Hvers konar kjötmeti, dafnía, artemía.
Sýrustig (pH): 8,3-4
Búrstærð: 100 l
Hitastig: 24-26°C
Verð: 2.790/3.090/3.690 kr.
|