|
Golden-mantled Rosella Platycercus eximius cecilae
Lýsing: Eins og Platycercus e. eximius en rauði höfuð- og bringuliturinn aðeins dekkri; hnakka-, bak-, og axlafjaðrir svartar með gulgylltri brún; neðri hluti baks og efri stélblöðkur blágrænar; aðeins stærri.
Óþroskaðir fuglar svipaðir og kvenfuglar en með daufari fjaðrir; margir ungir hanar eru með breiðar gular bakmerkingar; aftari hluti hvirfils og hnakki með gular fjaðrir á víð og dreif; fölt undirvængband til staðar; fá fullorðinsfjaðrir um 12 mánaða aldur.
Lengd: 33 cm.
Lífslíkur: 30-35 ár.
Um kynin: Kvenfuglar eins og Platycercus e. eximius en fjaðrabrúnir á hnakka og baki grængular.
Uppruni: Suðausturhluti Queensland og norðaustur- hluti New South Wales, Ástralíu; skarast við svæði skrúðpáfans í Hunter River dal.
Um fuglinn: Fuglinn er athafnasamur og verður fljótt hrekklaus. Ætti að hafa hann einan, sérstaklega um varptímann. Góður flugfugl og harðgerður. Hefur gaman af að baða sig og naga. Þarf að hafa nóg af greinum til að bíta í. Heldur sér oft á jörðinni þar sem hann getur krafsað í botninum. Þarf því reglulega að ormahreinsa hann ef hann er hafður utandyra.
Hávaðasemi: Miðlungs hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur.
|
|