toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Tasmanian Rosella

Tasmanian Rosella
Platycercus eximius
diemenensis

Lýsing: Eins og Platycercus e. eximius en rauði liturinn á höfði og efri hluta bringu dekkri; hvíti kinna- bletturinn miklu stærri.

Lengd: 30 cm.

Lífslíkur: 30-35 ár.

Um kynin: Kvenfuglar eins og Platycercus e. eximius.

Uppruni: Tasmanía.

Um fuglinn: Fuglinn er athafnasamur og verður fljótt hrekklaus. Ætti að hafa hann einan, sérstaklega um varptímann. Góður flugfugl og harðgerður. Hefur gaman af að baða sig og naga. Þarf að hafa nóg af greinum til að bíta í. Heldur sér oft á jörðinni þar sem hann getur krafsað í botninum. Þarf því reglulega að ormahreinsa hann ef hann er hafður utandyra.

Hávaðasemi:  Miðlungs hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur.

tasmanian

Undirafbrigði:
Platycercus eximius cecilae
Platycercus eximius eximius

botn