toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Matthews’ Cockatoo

galerita

Matthews’ Cockatoo
Cacatua galerita fitzroyi

Lýsing: Eins og C. g. galerita nema flest allir fuglar án gulu eyrnafjaðranna; vantar gula blæinn á háls og kinnafjöðrum; augnhringur fölblár; goggur breiðari og ferkantaðri.

Óþroskaðir fuglar með dökk augu hjá báðum kynjum; kvenfuglar fá fullorðinslit 2-3 ára; mjög ungir fuglar með fölgráleitan blæ á hvirfli, baki og vængblöðkum.

Lengd: 48 cm.

Lífslíkur: 70-100 ár.

Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlarnir en augu rauðbrún.

Uppruni: Norður-Ástralía frá Fitzroyá til Carpent- ariaflóa; allar stærri eyjar við ströndina; nær inn á sama svæði og C. g. galerita við Carpentariaflóa.

Um fuglinn: Fallegur og gáfaður fugl sem þykir gaman að sýna sig. Hann er félagslyndur, ljúfur og athafnasamur og afburðagóður talfugl. Hann er ekki eins þurftafrekur og margir aðrir kakadúar. Þarf nóg að naga, enda goggurinn afar sterkur.

Hávaðasemi: Afar hávær, einkum á morgnana.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Cacatua galerita eleonora
Cacatua galerita galerita
Cacatua galerita triton

botn