toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Sulphur-crested Cockatoo

Sulphur-crested Cockatoo
Cacatua galerita galerita

Lýsing: Allur fuglinn er hvítur að lit; eyrnafjaðrir fölgular; kambur gulur; undirvængblöðkur og undirstélsblöðkur með gulum blæ; gulur litur í rót fjaðra neðst á hálsi og kinnfjöðrum; augnhringur hvítleitur, stundum með mjög daufbláum blæ; augu svarbrún; fætur dökkgráir; goggur svartleitur.

Óþroskaðir fuglar með dökk augu hjá báðum kynjum; kvenfuglar fá fullorðinslit 2-3 ára; mjög ungir fuglar með fölgráleitan blæ á hvirfli, baki og vængblöðkum.

Lengd: 50 cm.

Lífslíkur: 70-100 ár.

Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlfuglarnir en augu rauðbrún.

Uppruni: Austur og suðasturhluti Ástralíu til suðausturodda Suður-Ástralíu, Tasmaníu og King eyju; hefur verið sleppt á Nýja-Sjálandi.

Um fuglinn: Fallegur og gáfaður fugl sem þykir gaman að sýna sig. Hann er félagslyndur, ljúfur og athafnasamur og afburðagóður talfugl. Hann er ekki eins þurftafrekur og margir aðrir kakadúar. Þarf nóg að naga, enda goggurinn afar sterkur.

Hávaðasemi: Afar hávær, einkum á morgnana.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Frekar  algengur.

Cockatoo_Sulphur-crested

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Cacatua galerita eleonora
Cacatua galerita fitzroyi
Cacatua galerita triton

botn