|
Triton Cockatoo Cacatua galerita triton
Lýsing: Eins og C. g. galerita nema kambur breiðari og ávalari; augnhringur fölblár; að jafnaði minni.
Óþroskaðir fuglar með dökk augu hjá báðum kynjum; kvenfuglar fá fullorðinslit 2-3 ára; mjög ungir fuglar með fölgráleitan blæ á hvirfli, baki og vængblöðkum.
Lengd: 46 cm.
Lífslíkur: 70-100 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir hafa lítið eitt rauðari augu en karlfuglarnir, og eru einnig með mjórra höfuðlag.
Uppruni: Nýju Gínea og Vestur Papúa-eyjar; eyjarnar í Geelvink-flóa; Goodenough, Fergusson og Norman- by; Louisiade eyjaklasinn; Trobriand og Woodlark-eyjar; hefur verið sleppt á Ceramlaut og Goramlaut í Indónesíu og Palau-eyjum í Kyrrahafi.
Um fuglinn: Triton kakadúinn er afar fallegur, gáfaður og þykir gaman að sýna sig. Hann er félagslyndur, ljúfur og athafnasamur og afburða góður talfugl. Hann er ekki eins þurftafrekur og margir aðrir kakadúar.
Hávaðasemi: Afar hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.
Verð: Ótaminn 250.000 kr. Handmataður 380.000 kr.
|
|