|
Sigga skrifar: Ég heiti Sigga og er fædd 1979. Ég er eigandi dísunnar Bíbí sem ég fékk hjá vinkonu minni haustið 2004, þá var hann rúmlega 1 árs. Bíbí er "normal grey" eða bara grár dísukarl og frekar smávaxinn. Þykir líklegt að hann hafi verið örverpið í hópnum. Hann bætir smægðina með feikna karakter og flauthæfileikum. Upp á síðkastið hefur Bíbí verið kallaður Ívan grimmi hér á heimilinu sökum gífulegrar frekju sem tengist sennilega vorinu og varphugleiðingum!
Bíbí féll strax vel inní litlu fjölskylduna mína, en fyrir á ég kanínu og hringhálsann Óríon. Þeir tveir þykjast ekki sjá hvorn annan og rífast sjaldan, og þeir skiptast alveg á að vinna rifrildin. Bíbí er frekja af Guðs náð og fær það sem hann vill, þegar hann vill það annars fer hann í fílu í heilar 10 mínútur! Já hann er fljótur að fyrirgefa ef honum er mútað með knúsi og klóri. Bíbí er sjúklega áhugasamur um gesti, og fæ ég akkúrat enga athygli ef gest ber að garði. Hann er aftur á móti oft svo aðgangsharður að ég verð að láta hann dúsa í búrinu á meðan ég sinni gestunum.
Bíbí kann að segja "halló", "halloj" og "komdu". Flautar nokkra lagstúfa og er mjög snöggur að læra ný hljóð. Hermir eftir tannburstun, flautar úlfablýstrið og raular. Dansar, kinkar kolli og snýr sér í hringi! Í góðu skapi hljómar hann eins og þröstur með engisprettu fasta í kokinu, eða eins og ástfanginn unglingur með kossahljóð! Mikil er fjölbreytnin a.m.k!
Í vondu skapi hljómar hann eins og heill hópur af kríum eða eins og leiserbyssa (ég kenni hringhálsanum um það!)
Ókostir: 1. Bíbí er yfirgengileg frekjudós sem bítur, klórar og öskrar ef hann fær ekki það sem hann vill. 2. Bíbí kúkar þar sem honum hentar, og finnst þæginlegast að kúka á föt. 3. Bíbí er rykfugl mikill og ég þarf að þrífa endalaust útaf honum einum! 4. Kanínan mín lætur rafmagnssnúrur í friði, en það gerir Bíbí ekki og skemmir a.m.k eina á mánuði! 5. Háður mannfólkinu, verður óstyrkur ef hann er laus í íbúðinni og sér enga manneskju. 6. Matvandur, en það er að batna - vill helst bara kínakál en er farinn að smakka papriku, brokkál og blómkál.
Kostir: 1. Bíbí er alveg ótrúlega kelinn og ég fæ knús á hverjum einasta degi 2. Bíbí kúkar litlum kúk sem auðvelt er að þrífa. 3. Hann er mjög fyndinn og er oft með trúðslæti, dansar eða dröslar dóti útum alla íbúð og gefur frá sér skondin hljóð! 4. Hann er flokkaður sem "hljóðlátur" fugl og er það...oftast! 5. Öfugt við hringhálsann minn, Óríon, þá er Bíbí mannblendinn og vill vera með í öllu sem við gerum. 6. Þessi litla skepna vinnur hug og hjörtu allra sem kynnast honum.....
Helgas skrifar: Hæhæ ég er 11 ára og á dísargauk sem er 7 vikna og er handmataður, ég er búin að eiga hann í 1 viku og það gekk mjög að kynnast honum og hann var byrjaður að byðja um klór 3 daginn. Gallarnir við hann eru að hann kallar mjög mikið á mann þegar hann vill komast út úr búrinu. Og að hann stelst í allt sem maður borðar hvað sem það er. Kostirnir við hann eru að hann er mjög rólegur og kelinn og alls ekki árásagjarn. http://www.tjorvar.is/spjall/viewtopic.php?t=20695&postdays=0&postorder=asc&start=0
|