toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Biak Lory

Biak Lory
Lorius lory
cyanuchen

Lýsing: Eins og L. l. salvadorii en þekkist á því að rauða litinn vantar á hnakka; blátt hnakkabandið tengist svarta hvirflinum og hnakkasvæðið, stærri.

Lengd: 33 cm.

Lífslíkur: 30-35 ár.

Um kynin: Kynin eru eins útlítandi og þarf DNA-próf til að greina kynið.

Uppruni: Biak eyja á Geelvink flóa.

Um fuglinn: Þessi hunagspáfi er mjög leikglaður og hvikur og ekki of hávær. Hann hefur gaman að blístri, smelluhljóðum og hvæsi. Hann er mjög greindur og forvitinn og sérlega athafnasamur. Þarf að hafa nóg fyrir stafni. Fljótur að aðlagast eiganda. Vill ferskar greinar og kalksteina.

Hávaðasemi: Frekar hljóðlátur.

Fóðrun: Fjölbreytt úrval af ávöxtum og grænmeti. Þarf einnig að fá blómasafa (nektar) og mikið af hreinum ávaxtasafa. Étur stundum fuglakorn og eggjafóður með. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur víðast hvar.

Biak Lory

Undirafbrigði:
Lorius lory lory
Lorius lory erythrothorax
Lorius lory salvadorii
Lorius lory viridicrissalis
Lorius lory jobiensis
Lorius lory somu

botn