|
Somu Lory Lorius lory somu
Lýsing: Eins og L. lory lory en þekkist auðveldlega á því að bláa hnakkabandið vantar; minni.
Lengd: 29 cm.
Lífslíkur: 30-35 ár.
Um kynin: Kynin eru eins útlítandi og þarf DNA-próf til að greina kynið.
Uppruni: Suðurhluti Nýju-Gíneu, frá Karimui Basin til Ok Tedi svæðisins.
Um fuglinn: Þessi hunagspáfi er mjög leikglaður og hvikur og ekki of hávær. Hann hefur gaman að blístri, smelluhljóðum og hvæsi. Hann er mjög greindur og forvitinn og sérlega athafnasamur. Þarf að hafa nóg fyrir stafni. Fljótur að aðlagast eiganda. Vill ferskar greinar og kalksteina.
Hávaðasemi: Frekar hljóðlátur.
Fóðrun: Fjölbreytt úrval af ávöxtum og grænmeti. Þarf einnig að fá blómasafa (nektar) og mikið af hreinum ávaxtasafa. Étur stundum fuglakorn og eggjafóður með. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur víðast hvar.
|
|