toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Black-capped Lory

Black-capped Lory
Lorius lory lory

Lýsing: Almennt rauður; enni, augnsvæði, hvirfill og hnakki svartur; efribringa rauð; neðribringa, kviður, mjaðmir, undirstélblöðkur, hnakkaband og bak dökkblátt; blátt hnakkaband nær að bláa bringulitnum; vængir kopargrænir; undirvængblöðkur rauðar; breitt gult band neðan á vængjum; undirhlið stélfjaðra dauf olivíugul, efri hliðin rauð með svarbláum endum; nefsvæði dökkgrátt; augnhringur svartur; augu rauð-appelsínugul; fætur gráir; goggur rauð-appelsínugulur. Fimm undirtegundir til.

Ókynþroska fuglar með bláar undirstélsblöðkur; augu dökk.

Lengd: 31 cm.

Lífslíkur: 30-35 ár.

Um kynin: Kynin eru eins útlítandi og þarf DNA-próf til að greina kynið.

Uppruni: Vogelkop skagi, West Irian eyja og Waigeu, Batanta, Salawati og Misool-eyjar.

Um fuglinn: Þessi hunagspáfi er mjög leikglaður og hvikur og ekki of hávær. Hann hefur gaman að blístri, smelluhljóðum og hvæsi. Hann er mjög greindur og forvitinn og sérlega athafnasamur. Þarf að hafa nóg fyrir stafni. Fljótur að aðlagast eiganda. Vill ferskar greinar og kalksteina.

Hávaðasemi: Frekar hljóðlátur.

Fóðrun: Fjölbreytt úrval af ávöxtum og grænmeti. Þarf einnig að fá blómasafa (nektar) og mikið af hreinum ávaxtasafa. Étur stundum fuglakorn og eggjafóður með. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur.

Black-capped

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Lorius lory erythrothorax
Lorius lory salvadorii
Lorius lory viridicrissalis
Lorius lory jobiensis
Lorius lory cyanuchen
Lorius lory somu

botn