toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Dimidochromis

UNDIRSÍÐUR

Siklíður af Dimidochromis ættinni þekkjast af vaxtarlaginu. Þær eru munnalarar, eins og flestar malavísiklíður, en flokkast ekki undir mbúnur. Þær verja svæði sitt af miklu harðfylgi. Karlfiskurinn er litmeiri en kvenfiskurinn. Dimidochromis siklíður éta þörunga og smávatnadýr og verða býsna stórar. Þær eru í eðli sínu ránfiskar og éta einnig smáfiska. Tímgunin er hefðbundin fyrir malavísiklíður. Karlinn finnur sér hrygningarstað og grefur niður á flatan stein. Síðan lokkar hann kerluna að með miklum tilþrifum en rekur hana síðan burt að hrygningu lokinni. Meðgangan er um 3 vikur og að því loknu sleppur kerlan seiðunum og skiptir sér lítið af þeim.

 Dimidochromis kiwinge
 
Dimidochromis compressiceps
 
Dimidochromis strigatus

Dimidiochromis_20compressiceps_m_-4
botn