Hærra fituhlutfall (30%) og L-karnitín fyrir þol og heilbrigða vöðva, psyllíum til að minnka niðurgang af völdum streitu og magnesíum til að fyrirbyggja krampa.
Hátt orkumagn (4820 kkal/kg) til að mæta mikilli hreyfiþörf og E og C vítamín til að berjast gegn frumuhrörnun.
Hærra fituhlutfall (30%) til að sporna gegn kulda og halda hitamissi í lágmarki.
Ráðlagður dagsskammtur
Þyngd hunds
11 kg
13 kg
15 kg
17 kg
19 kg
21 kg
23 kg
25 kg
Hreyfing <1klst/dag
160 g
180 g
200 g
215 g
235 g
255 g
270 g
285 g
Athafnasamur
190 g
215 g
235 g
260 g
280 g
305 g
325 g
345 g
Afar fjörmikill
235 g
265 g
295 g
325 g
350 g
380 g
405 g
430 g
Sumir meðalhundar hreyfa sig mjög mikið og vinna við misgóð skilyrði (í miklum kulda eða hita, í erfiðu landslagi, mikilli hæð o.s.fr.). Við þess háttar erfiði þarfnast hundurinn góðrar fæðu svo að geta hans og úthald sé í lagi.
Fyrir virka: frá 12 mánaða til 7 ára
Að auka þolið. Því lengri sem áreynslan er, þeim mun meiri er orkuþörfin (+10% á hverja klst). Áreynslan veldur bæði líkamlegu og andlegu álagi hjá hundinum, líkt og hjá íþróttamönnum. Ef gæði fóðursins er ábótavant getur það framkallað krampa og valdið blóðsykursskorti, og hundurinn er þar af leiðandi lengur að jafna sig.
Að þola breytilegan lofthita. Útihundar þurfa að þola miklar hitasveiflur og geta viðhaldið réttum líkamshita. Þegar hitinn úti er t.d á milli 0°C og 10°C þurfa þeir 30% meiri orku en innandyra og ef hitinn fer yfir 30°C eykst orkuþörfin um 40%
Furðufuglar og fylgifiskar | Bleikargróf 15 | 108 Reykjavík | Sími : 581-1191, 699-3344, 899-5998