|
Greater Yellow-headed Amazon Amazona ochrocephala magna
Lýsing: Stóri gulhöfðinn er eins og gulhöfðinn nema guli liturinn nær niður á bringu og hnakka; hnakkafjaðrir á sumum hafa rauða brún; aðrar bringufjaðrir og kviðfjaðrir eru grænar og með dökka brún hjá flestum fuglum; mjaðmir eru alveg gular; vængbeygja rauð með mikið af gulum fjöðrum; að jafnaði stærri.
Lengd: 40 cm.
Lífslíkur: 70-80 ár.
Um kynin: Enginn sjáanlegur útlitsmunur. Kyngreindir með DNA-aðferð.
Uppruni: Karíbahafsströnd Mexíkó frá Nuevo León, Tamaulipas; Vera Cruz, austurhluta Qaxaco og Tabasco.
Um fuglinn: Gulhöfða amasónar geta orðið frábærir talfuglar og hafa yndi af að læra heilu lögin utan að. Þeir eru ástúðlegir og vinalegir við flesta.
Hávaðasemi: Miðlungi hávær-hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Í útrýmingarhættu.
|
|