|
 |
|
Natterer’s Amazon Amazona ochrocephala nattereri
Lýsing: Natterer amasoninn er eins og gultoppurinn en með þykkt grænt ennisband; bláleitar kinnar, eyrufjaðrir og háls; grænn litur bringu og kviðar getur verið frá gulgrænum upp í blágrænn; vængbeygja rauð en oft með gulu í; efri goggur grár með gulbleikar hliðar; að jafnaði stærri.
Lengd: 38 cm.
Lífslíkur: 70-80 ár.
Um kynin: Kynin eru eins útlítandi. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Frá Caquet í S-Kolómbíu yfir A-Ekvador, A-Perú og norðvestur Mato Grasso til N-Bólivíu.
Um fuglinn: Natterer amasoninn getur orðið ágætur talfugl og hefur yndi af að læra heilu lögin utan að. Þeir eru blíðir og vinalegir við flesta en geta orðið frekir ef þeir komast upp með það.
Hávaðasemi: Talar og syngur mikið.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Í útrýmingarhættu.
|
|