|
Honduras Yellow-naped Amazon Amazona ochrocephala parvipes
Lýsing: Hondúras gulhnakkinn er eins og hefðbundni gulhnakkinn í útliti nema með nokkrar rauðar fjaðrir í vængbeygju og styttri lappir að jafnaði; goggur dökkgrár-grár.
Lengd: 38 cm.
Lífslíkur: 70-80 ár.
Um kynin: Engin útlitsmismunur er á kynjunum.
Uppruni: Karíbahafsstrendur A-Hondúras og NA-Nikúragúa.
Um fuglinn: Hondúras gulhnakkinn getur orðið fínn talfugl og hefur yndi af að læra heilu lögin utan að. Þeir eru blíðir og vinalegir við flesta en geta orðið frekir ef þeir komast upp með það.
Hávaðasemi: Talar og syngur mikið.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Í útrýmingarhættu.
|
|